Kjúba og rest

hetjusögur frá suður ameríku

19.12.2006 12:38:16 / einar

19. des 2006

ííííííha!


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 15:56:15 / einar

datt í poll

jæja þá er búið að jarða þetta lífræna próf, loksins. Frammistaða mín ætti að duga til áframhalds. En nóg um það.

Ingibjörg á afmæli, enda er hún með endemum rosaleg. Feliz cumpleanos!! Spurning hvort hún haldi ekki upp á það næstu helgi.

Októberfest er á næstu grösum, nánar tiltekið næsta föstudag. Eitt er víst að bekkurinn minn ætlar að detta í það, allir með tölu, allir saman nú, enda hin lífræna búin á því.

Svo er spurning hvort mar hitti ekki einhverja þarna, enda myndast venjulega mikil stemmning í kringum þetta á ári hverju.

Hviss bamm búmm, ætla í sturtu núna ef einhver hefur áhuga á því. Var í fótbolta áðan og svo er það út að borða á Vegamótum kl. 19.

sssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss...... já djöfull er Ray góð mynd. Jamie Foxx á mikinn heiður skilinn fyrir frammistöðu sína (enda kannski búinn að hljóta hann, fékk náttlega óskarinn og allt það).

ciao


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 18:15:11 / einar

farhópar og karboxylsambönd.. þheigjiðu....

http://www.69.is/openlink.php?id=20722

Ekkert sérstakt að frétta nema það að ég er að fara í próf á mánudag í lífrænni.

Á ekki eftir að gera mikið um helgina nema læra, engin drykkja í þetta sinn en örvæntið ekki... það verður bætt úr því helgina eftir því þá er oktoberfest og bekkurinn ætlar að detta í það ásamt sennilega flestum úr háskólanum enda laðar

ódýr bjór og stemmning að.

Svo ef ég vinn snooker-mótið sem er í gangi hjá 1. ári þá vinn ég 15 bjóra, 1 frá hverjum keppanda, en málið er að ég verð þá að klára þá alla á oktoberfest-föstudeginum í viðurvist vitna. Ekkert rosalega spenntur fyrir því en ég ætla samt að reyna að vinna.

Ég og henrik og gummó horfðum á Ronju ræningadóttur í gærkvöldi. Rosalegt að sjá hana aftur. Rassálfar, skógarnornir og grádvergar. Næst er það Bróðir minn ljónshjarta.

Nú mun blóðið renna, hahahaha, blóðið renna!!!

Akkurju? Af hverju fer hún svona að þessu?! Af hverju gerir hún etta, akkurju?


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 17:19:01 / einar

óoooooooooooooooooooooooooomar

Fór í gönguna í gær og hitti Atla. Djöfffull voru margir. Uppskar þó smá kvef því kalt var í veðri og ég illa klæddur því ég skellti mér á síðustu stundu því ég lifi svo hratt og kúl...

Áðan ákvað ég t.d. að fá mér ekki kæfu á brauðið heldur ristaði ég brauðið og notaði smjör...

Annars var ég kosinn í Alþjóðanefnd í gær...

einaratata


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.09.2006 15:30:58 / einar

djöfuls harðsperrur fékk ég eftir ræktina, var að drepast í tvo daga. Rétt að jafna mig af þessu núna.

Annars var ég að koma úr nýnemaferðinni þar sem við gistum í Þjórsárveri, það kom í ljós að húsið heitir bara Þjórsárver og er rétt hjá Selfossi, ekki í Þjórsárveri upp á hálendi.

Djöfull var etta gaman mar... Steindór kenndi mér geðveikan drykkjuleik og ákveðinn Biggi átti kvöldið. Matur og frítt áfengi var ekki slæmt og stemningin var eftir því. Fórum í laaangan nafnaleik þar sem allir þurftu að nafngreina hverja einustu manneskju og drekka ef þeir klikkuðu. Ég er ekki frá því að hann hafi gert sitt gagn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 13:57:47 / einar

Tsotsi....

á morgun því það er síðasti sýningardagur

djöfull var tekið á því í dag, fyrst í 3ja tíma prófi, og  svo í ræktinni í fyrsta sinn í tvo mánuði...

la guerilla


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 12:23:22 / einar

bitið á en ekki laaaaaaandað....

Fór í bæinn á föstudag því spiritusvígslan var þá á Pravda. Þar fékk mar bjór og hina margrómuðu spiritus fortis bollu. Hún var gerð úr 2 lítrum af 96% spíra (úr svona brúnum efnaglösum, beint af efnafræðistofunni) og blandi. Held að úr þessum 2 lítrum hafi orðið um 36 lítrar af bollu. Hún var frekar sterk þannig ég hætti eftir þrjú glös og vatt mér heldur í bjórinn. Það var rosa stemning þarna á efri hæðinni og flykktust verkfræðinemar af neðri hæðinni upp, en þeir voru víst með eitthvað björkvöld þar. Semsagt vel heppnað kvöld.

Síðan stungum við Henrik af eitthvað á flakk upp Laugaveginn.

 

Það fór ekki eins vel og á horfðist með lærdómshelgina en ég virðist nú alltaf sofa fram til 18 eða jafnvel 20 á kvöldin eftir svona herlegheit í bænum. Það er ekki kúl. Kíkti í bæinn á laugardaginn á bílnum með Henrik og Gummó en hvernig ætli það hafi endað. Jebb...

Við keyrðum mi hermanito og eitthvað lið á Nasa en hann hafði verið með partý heima...

 

Bjórinn var heimsóttur á börum bæjarins og almenn sveifla tekin (eða trukk og dýfa líkt og hemmi kallaði það um daginn). Hringdi í Atla þetta kvöld en hann var slappur heima með cock í hálsinum eða eitthvað þvíumlíkt (gæti reyndar hafa verið streptokokkasýking, eitthvað var það).

 

Bærinn virðist vera orðinnn eitthvað klikkaður. Á allra seinustu bæjarferðum mínum hefur mér verið ógnað með hníf, séð tvö slagsmál, og kýldur í bringuna af trukkalessu á Celtic.

Hún sagðist vera rasisti og hata Arafat, henni leist semsagt eitthvað illa á kafíuna sem ég ber að jafnaði um hálsinn. Hvernig er heimurinn að verða?, svör sendist á Höfn í Hornafirði...

 

Já ég Henrik urðum vitni að tveimur slagsmálum á laugardagsnóttina og enduðu þau fyrri með því að annar rotaðist og datt í götuna. Ég hringdi á sjúkrabíl og reyndi að vekja strákinn sem komst fljótt til meðvitundar en var mjög vankaður. Það var frekar ljótt að sjá það.

 

Hittum Jósep þegar við vorum að fara heim á föstudagsnóttina. Við skemmtum okkur við það að læra bolabrögð af jósa. Það var mjög fyndið. Jósi: SKo.... gríptu í mig hérna...

nari eða rikki rikk grípur:

*bamm*  aaaaaaaaaaaaiiiiii og svo var hlegið og rútínan endurtekin. Strákurinn er víst að fara til Tékklands á þriðjudaginn í æfingabúðir og kemur sennilega all-reffilegur til baka.

 

EN nóg í bili

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 07:19:19 / einar

sinfónía þagnarinnar...

klukkan er eitthvað yfir 7 að morgni og ég svaf ekki eina mínútu í nótt, en ég hugsaði aftur á móti um allt og ekkert. Þannig ef ég þekki þig þá hugsaði ég sennilega eitthvað um þig í nótt því hugurinn reikaði um margan eyðisandinn.

Búinn að vera veikur síðustu tvo daga og ég svaf til átta eða eitthvað síðasta kvöld. Ég og henrik virðumst deila sama hæfileikanum að lifa á öfugsnúnum sólarhring.

Verð að fara, verklegt klukkan 08.00....

Ciao muchacho/-a


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 11:42:22 / einar

papparass

sá mynd af henrik í portúgölsku slúðurblaði, hann hafði orðið paparazzi-ljósmyndurunum að bráð í sumar. Frekar fyndið að sjá þetta, spurning hvort það sé ekki hægt að græða á myndum af stráknum.

ok Henrik, þú þykist vera að gera einhvern óskunda, ég næ mynd af því og síðan sel ég myndina einhverju blaði í portúgal og við splittum peningnum... Getur ekki klikkað

ég sé fyrir mér fyrirsögn ....El hijo de Henrique Garcia está loco.... (skrifa á spænsku því ég kann ekki portúgölsku)


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 23:17:01 / einar

örblogg...

klukkan er rúmlega 23 og ég var að enda við að pissa í flösku til að taka með mér í verklega tímann á morgun..

hrekkur?

lyfjapróf?

nei, títrun eða einhverskonar greining


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 15:44:56 / einar

ranie

já fyrsti verklegi tíminn í dag, hann var bara fínn, ég sprengdi tilraunaglas og allt...

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 00:34:38 / einar

öfugsnúinn sólarhringur...

ég er nátthrafn þessa dagana

þetta er allt frekar spennandi, það sem er framundan...


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 10:20:10 / einar

.

klukkan er rúmlega 10 á sunnudagsmorgni, ég var að klára vakt áðan, ég er einn í heiminum

mjááá....


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 20:24:48 / einar

haha

Rakst á þessa síðu á b2.is. http://bulapictures.com/gallery/route666.html Þetta er vegurinn sem við raggi hjóluðum niður...

Ég las einhverntímann í lifandi vísindi að einn bíll fari á meðaltali fram af brúninni á viku enda voru svona krossar og minningartákn allsstaðar á leiðinni niður en vegurinn er eitthvað um 40 km langur... Þetta er líka svolítið brattur vegur fyrir þunga vörubíla þannig þeir stoppa ekkert á leiðinni upp. Ef þeir stoppa er hætt á að þeir komist ekki aftur á stað og þurfi að bakka niður. Þess vegna var okkur sagt að vera ekkert að þvælast fyrir þeim því þeir mundu ekki stoppa.

 

Hitti Tobba um síðustu helgi, hann sagði mér að ástæðan fyrir því að hann kom til Íslands var að þegar hann var að koma aftur til Kúbu frá Mexíkó eftir að hafa endurnýjað landvistarleyfið var hann settur í fangelsi þar í tvo daga. Svona er Kúba skemmtileg varðandi þetta.

Annars fer konan hans að koma bráðum, hann sagði í þessari viku en þetta virðist vera svolítið vesen þannig mar veit ekki.

Annars er mar kominn í álið aftur á Grundartanga. Langar vaktir en hey, stundum gerist eitthvað spennandi. T.d. þegar við erum að ræsa ker, þá taka þeir strauminn af öllum skálanum (sem er nokkurnveginn sama og gerðist í straumsvík nema þar gátu þeir ekki sett hann aftur á vegna þess að spennu-eitthvað fóru, úr því varð milljarðatap) og þá þarf að vinna hratt. Þá verður mar var við adrenalínið og noradrenalínið (eða eitthvað þvíumlíkt). Ágætis bragð til að vakna ef mar er að leka niður, hey allir eru að sofna, RÆSUM KER!

 

Um daginn vorum við að vinna nokkur saman og það gleymdist að herða flexana (þvílíka pro-tungan) að ofanverðu. Einhver tyllti boltunum á skrúfurnar þannig að það leit út fyrir að við hefðum hert það en nei...

Daginn eftir sagði verkstjórinn við ykkur: Sko, ég ætla bara að segja eins og er. Við hefðum getað fengið ljósboga í loftið og öll drepist. Sem betur fer gerðist það ekki.

Heppin við segi ég nú bara!

 

Það var eitthvað búið að tala um útilegu en það verður greinilega ekkert úr henni. Talaði við Atla í gærkvöldi og fólk er víst bara einhversstaðar úti í rassgati.

Hringdi í Gunnar frænda (sem vinnur líka í álinu, ég á tvo frændur þarna á mínum aldri og þriðji vann þarna á undan mér, reyndar bara einn á sömu vakt og ég) og ég ætla að hitta hann um helgina. Reyndar veikur núna þannig það verður ekkert tekið á því í kvöld hjá mér. Annars fer ég ekki að vinna aftur fyrr en á þriðjudagsmorgun og svo eru Sigurrós tónleikarnir á sunnudagskvöld (skyldumæting fyrir alla). Þið gætuð jafnvel séð furðulega fólkið sem eltir Sigurrós út um allan heim. Bjór þá held ég að væri góð hugmynd. Sjá hvort mar nái ekki að plata einhverja með í það. Veit að Henrik ætlar og hann er ekki að vinna þannig....

Langt síðan mar hefur hitt Henrik, fyrst fór ég út og þegar ég var að koma heim fór hann út til pabba síns. Síðan var ég að vinna og nú fór hann í dag til Húsavíkur með einhverjum strákum á einhverja hátíð.

Atli og Jói fóru að öllum líkindum áleiðis í dag til Borgarfjarðar eystra á tónleika með Belle og Sebastian og fleirum.

Virkar rakvélar sem geta "trimmað" hár vel þegnar, sendist í Hlíðarbyggðina því við bræður þurfum þannig.

Denni virðist ætla að sækja um skóla einhversstaðar í tölvumyndvinnslu eða einhverju þvíumlíku sem er bara gegt cool, það er algjört æði, það er ýkt þegar við röppum landafræði, ÖLL Í EINU! (nostaaalgía)

Því hann var að segja mér að við þyrftum að taka upp eitthvað efni sem hann gæti klippt því hann þarf að setja saman svona "möppu" með verkefnum.

En nóg í bili..

Catch you on the flipside...

Amm, svo er mar líka kominn inn í lÆknIsfrÆði

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3